Aðalvalmynd

Auglýsing

Könnun

Heldurðu að það séu til kindur á öðrum plánetum?

Klukkan

Innskráningar kubbur

Pæling

02. september 2008 klukkan 22:01
Ég var að pæla. Það er svo ofboðslega gaman að pæla, hefurðu pælt í því? Ég pæli stundum um að pæla. En oftast pæli ég eitthvað annað en þá tek ég heldur ekki eftir því hvað er á seyði í kringum mig. Það getur komið mér í vandræði.
Núna var ég hinsvegar að pæla í hinni íslensku tungu og hversu undarleg hún getur verið. Ég var einnig að pæla hvort að einhver fari inn á þessa síðu almennt. Þannig að ég ætla að slá tvær flugur í einu höggi. Ég ætla að biðja þig, lesandi góður, um að
vera svo vænn að segja mér þitt uppáhálds íslenska orð. Setja það bara í kommentin Ullandi

Eigum við að flýja í ofboði?

07. júní 2008 klukkan 03:16
Tíminn líður hratt þessa dagana. Mér finnst eins og ég hafi byrjað í vinnunni fyrir einni viku þegar í raun og veru hafa þær verið þrjár. Furðulegt það.

Ég og Auður erum búnar að skemmta okkur konunglega í vinnunni við að finna upp titla og plott fyrir bókaseríu sem við erum staðráðnar í að skrifa. Fyrsta bók mun kallast "Húff hinnar köldu manneskju" sem snýst um konu sem býr annað hvort í eða fyrir utan strætóskýli og snýst nærri öll bókin um lýsingar á kuldanum sem grey konan uppllifir þar til að hún fer inn í strætóinn og verður þar ástfangin af manni. Önnur bókin mun heita "Sálgreiningin sem aldrei kom" og snýst um mann sem að fer til sálfræðings og fær enga sálgreiningu heldur fer bara í strætó og hittir fyrrnefnda konu. Þriðja bókin mun kallast "Hvernig dirfðist ég" og fjallar um þegar maðurinn dirfðist að biðja um hönd konunnar því að hann þurfti á henni að halda í tilraunastarfsemi. Fjórða og seinasta bókin mun síðan heita "Fyrsta flokks samloka" og mun fjalla um skrautlegt og skrúðugt fjölskyldulíf mannsins og konunnar.

Eftir tvær vikur ætlum við (ég, Auður og Tíbrá) að keyra suður til Reykjavíkur (alveg sjálfar) og ná í hana Mörtu okkar Kínafara. Spenningurinn stigmagnast eftir því sem nær dregur og planleggingar eru á fullu.

Mig hefur ekki dreymt neitt skemmtilega furðulegt seinustu daga nema kannski þegar mig dreymdi að Doktorinn væri að berjast við sjóræningja á uppblásnu geimskipi... það var bleikt.

Ég skipti óðfluga um efni eins og óð fluga og er því miður búin að smitast af Auði og er farin að segja hræðilega orðabrandara sem fólk fær hroll við að heyra.

Talandi um brandara, hér koma nokkrir vel valdir fílabrandarar því þeir eru brilliant!

Hvað kallar þú fíl í kjól með bleik eyrnaskjól?
Hvað sem þér sýnist, hann heyrir hvort sem er ekkert.

Hvað er það sem er gult,grátt, gult,grátt, gult,grátt, gult,grátt, gult,grátt, gult,grátt?
Fíll sem rúllar niður brekku með fífil í munninum.

Hvers vegna eru fætur á fílum svona í laginu?
Til þess að þeir passi á vatnaliljublöðin.


Hvers vegna er ekki óhætt að vera hjá liljutjörnunum milli 4-6 síðdegis?
Þá eru fílarnir að hoppa á milli vatnaliljublaðanna.


Hvers vegna eru froskar svona stuttir?
Þeir voru í liljutjörnunum milli 4-6 síðdegis.


Hvar getur þú fundið fíla?
Það fer eftir því hvar þú týndir þeim.

Hvers vegna eru fílar í bláum íþróttaskóm?
Hvítir skór skitna svo fljótt.


Hvers vegna halda fílar sig í stórum hjörðum?
Til þess að fá magnafslátt af bláum íþróttaskóm.


Hvers vegna láta fílar sig fljóta á bakinu?
Til að bleyta ekki íþróttaskóna sína.


Hvað er það sem er klomp, klomp, klomp, skvamp, klomp, klomp, klomp, skvamp?
Fíll í blautum íþróttaskóm.


Ok, ég held að það sé nóg komið því sjálf er ég að flissa eins og fíll að lesa Andrésblað.

Próf, próf, próf og aftur próf!

06. maí 2008 klukkan 20:23
Ég nenni eiginlega ekki að skrifa um próf. Maður verður bara þunglyndur á því!
Þá verð ég víst að finna eitthvað annað til að skirfa um.... tæknilega séð ætti það ekki að vera erfitt.... tæknilega séð.

Ég er farin að sjá fullt af býflugum! Það eru alltaf gleðifréttir, býflugur eru alltaf skemmtilegar kjötbollur. Ég er hrædd um að það verði ekki mikið um samhengi í þessu bloggi...

Ég held að Mirra sé komin með kvef! Hún er allavega að hnerra eins og frjókornaofnæmissjúklingur. Vá langt orð!

....Ég sé að líf mitt er alveg gífurlega spennandi.

Mér er farið að langa í sumar og grænleika. Snjórinn er að mestu farinn en fjöllin eru ennþá hvít. Það er allt frekar grátt úti. Grár er mjög leiðinlegur litur. Mér finnst að allt ætti frekar að vera appelsínugult! Miklu meira ánægjulegt.

Ég er búin að vera að horfa á svo marga Sci-fi þætti undanfarið að það líður ekki sú nótt þar sem mig dreymir ekki geimverur, geimskip, aðrar plánetur eða fljúgandi innkaupakerrur. Veit reyndar ekki hvernig innkaupakerrurnar komu sér inn í undirmeðvitundina mína.

Eins og ég sagði, ekkert voðalega mikið samhengi.

Daradada daradada daradada Daradada!

01. apríl 2008 klukkan 22:42
Jæja... blogga blogga blogga.....

Doctor Who byrjar aftur á laugardaginn!!!!!!!!!


SQUEEEEEEE OF RASSILON!!!!!!!!!

Þá er ég búin að koma því hjá. En ég hef í alvöru ekki getað hugsað um annað í heila viku!! Það er allt Boggu að kenna...
En váts maður hvað þetta á eftir að vera spennandi!!! Það eru komnir trailerar sem eru alveg ÚÚÚÚÚÚ og titlar sem eru alveg GAAAAAAAA og litlir svipir á Doktornum sem eru alveg GAAAAAASP!!! Eins og þið sjáið þá er þetta allt mjög spennandi. Ég verð að muna eftir að anda..... það sagði einhver við mig að það væri mjög mikilvægt.

En talandi um að anda, flakkarinn minn andaðist um daginn og með honum allt mitt vídjó skemmtó. Hans seinasta verk var að bjarga þriðju seríu af Doctor Who áður en hann drapst, lést, dó, fór á betri staðinn, sagði farvel grimma veröld, hvarf af yfirborði jarðar, gleypti öndina.... hún var ósoðin btw.

Á sama augnabliki ákvað tölvan mín að fremja sjálfsmorð. Hún versnar með hverjum deginum og hef ég þurft að fá lánaðann flakkara til þess að bjarga öllu mínu húllumhæji áður en hún fer í alsherjar straujun. Er ekki annars J í straujun???

Látum okkur sjá hvað fleira markvert hefur skeð.... ja það er nú alveg slatti en óþarfi að minnast á svo niðurdrepandi hluti hér. Hmmm ahhh nú veit ég! Víst að við vorum að tala um furðulega drauma hér í síðasta bloggi (skrifað fyrir Krist) þá væri kannski skemmtilegt að minnast á hvað mig dreymdi þegar ég sofnaði í rúminu hennar Dagrúnar á vistinni. Þetta var örstuttur draumur á milli svefns og vöku og snerist í stuttu máli um það að ég var að smakka kókaín sem var svo í raun og veru nammiduft.... það var mjög gott á bragðið =)

Pffff dettur ekkert meira í hug.....

Það sem ég skrifaði í íslensku tíma um daginn:

30. janúar 2008 klukkan 17:09

Já, það er alltaf gott að vita að Guðbrandsbiblía var metin á 2-3 kýrverð. Er það ekki spennandi?! Ég er að reyna að rifja upp drauminn em mig dreymdi í lúrnum mínum í dag. Hann snerist um geimverur (kemur á óvart) nema hvað að þessar geimverur áttu alvöru fljúgandi diska!! Eins og í Kjúlla Litla!!! Það voru einhverjir hermenn að reyna að skjóta niður geimskipin og ég var að hrista hausinn yfir vitleysunni í þeim. Ætlast þeir virkilega til að geta skotið niður geimskip frá annarri plánetu með venjulegum jarðarbyssum! Síðan er náttla spurning hvort að geimverurnar vora að gera innrás eða einfaldlega að spyrja til vegar... Ég fékk aldrei að komast að því þar sem vekjaraklukkan mín hringdi og vakti mig. Pfft, sorglegt finnst þér ekki?
Crymogæa er gríska og þýðir Ísland.
Ágætt, núna eru bara fimm mínútur eftir af þessum yndislega íslensku tíma. Þetta er alveg stórfurðulegt! Ég get ekki komist í gegnum eina önn án þess að vera í allavega einu leiðinlegu fagi! Pfff... þetta virðast ætla að vera mjög langar fimm mínútur. Ég er viss um að þetta er allt eitt stórt samsæri!!! Fullorðna fólk þessa heims reynir eins og það getur að gera skólann eins leiðinlegan og mögulegt er. Það endar með því að okkar kynslóð verður heimsk á meðan gamlingjarnir finna upp yngingarlyf og lifa að eilífu, ráðandi yfir heiminum!!!!

Voða innihaldsríkt blogg!

17. janúar 2008 klukkan 00:17
Mér líst vel á appelsínugulann, appelsínugulur hefur alltaf boðað gott! Desktopið mitt er appelsínugult akkúrat núna... því miður er ekki hægt að segja það sama um herbergið mitt. Ég sakna appelsínugula herbergis míns...
En nóg um appelsínugulann!
Dr. Agneta hélt hljómsveitaræfingu í dag í fyrsta skiptið síðan að Marta fór til Kína! Það var dáldið furðulegt að hafa enga Mörtu þarna... en mér finnst að þetta hafi gengið bara ágætlega! Verst er að okkur vantar bara upptökutæki en Marta sá alltaf um það =(við notuðum símann hennar Kristínar sem bráðabirgðarupptökutæki)=
Hmm er eitthvað fleira í fréttum... gaaaaaaaaa ég er tóm... og ég er alltaf að rekast í kommu takkann. Engar áhyggjur ég stroka þær út strax aftur... samt pirrandi. Ja kannski ekki fyrir ykkur þar sem að ég er búin að stroka allar kommurnar út en þær eru að þvælast mjög mikið fyrir mér þannig að mér finnst það pirrandi. Heilagar hundasúrur, ég er farin að skrifa um kommur!!!
Þegar ég horfi út um gluggann sé ég ljós í fjarska, ætli þetta sé geimskip eða bara fjall með ljósi einhversstaðar? Ég verð að komast að því!
Ætli það séu til kindur á einhverjum öðrum stað en á jörðinni?

6 hlutir sem ég þoli ekki

14. desember 2007 klukkan 23:07

1. Keðjupóstar. Ég haaaaata keðjupóst. Þoli hann ekki! Hver kannast ekki við að hafa fengið keðjupóstinn um að það eigi að fara að loka eða rukka fyrir msn? Í þessum pósti fylgir oftast linkur á fréttasíðu BBC þar sem finna má ósvikna frétt um sama málefni. En það er eitt... nei bíddu... tvennt sem ætti að segja manni að keðjupósturinn sé plat. Í fyrsta lagi var fréttin skrifuð á því herrans ári 2001. Og ef þetta nægir ykkur ekki þá er linkur á aðra frétt við hliðina á þessari sem segir að þúsundir manns hafi látið gabbast af svona pósti. Plís, ekki senda mér keðjupóst!!!


2. Fjarskyldar frænkur sem gefa mér eyrnalokka. Þarf ég að segja eitthvað meira eða?

3.
Naflar!!!


4. Auglýsingar sem mótmæla því að fólk taki vinnuna með sér heim. Hvernig væri þá að fella niður heimavinnu í skólum, hmmm?


5. Lyktin sem hefur komið í herbergið mitt þrisvar í þessari viku. Hún kemur einungis þegar vont veður er úti og henni fylgir oftast rafmagnsleysi í öllum bænum. Lykt þessi er blanda af reykingafýlu, olíulykt, og drasllykt. Sú sama og er í bílskúrnum reyndar. Hún hefur enga uppsprettu og alls enga ástæðu til að vera þarna. Hana er ekki að finna á neinum öðrum stað í húsinu og hún kemur og fer án viðvörunar.


6. Liturinn gulur... ekki spyrja mig afhverju.

Síðasti prófdagur á morgun!!!

06. desember 2007 klukkan 10:51
Á morgun fer ég í tvö seinustu prófin á árinu en þau eru einnig erfiðustu prófin Óákveðinn
Ég tók eftir því að prófunum mínum var raðað eftir erfiðleikastigi. Fyrst fór ég í íþróttapróf, svo enskupróf, svo frönskupróf, svo spænskupróf núna áðan og svo fer ég í sögu og íslensku á morgun. Reyndar er sagan erfiðari þó að hún sé á undan en við skulum bara ekkert pæla í því.

Fyrir þessi tvö próf þarf ég að lesa alveg skelling af blaðsíðum og þau eru bæði á sama degi!!! Hvílíkt óréttlæti!!! Síðan væri alveg týpískt ef ég fengi gubbupestina sem mamma og Kristján eru búin að vera með og treystið mér það er ekki fögur sjón.

Mig langar mest að skríða upp í rúm aftur þar sem hlýtt er en neeeiiii ég þarf að lesa hundruðir blaðsíðna á einum degi og það í skólabók!!! Ef að það væri einhver önnur bók þá gæti ég það mögulega en svo virðist sem að ég sofni alltaf fram á sögubókina mína.

Það er farið að birta úti... það er merki um það að ég eigi að hætta að væla og byrja að lesa............. Rassilon hjálpi mér!

Rumblubull

29. nóvember 2007 klukkan 18:50
Já... þónokkrir aðilar hafa nýlega verið að benda mér á það að ég þurfi að fara að blogga. Það er kannski rétt en það hefur bara ekkert bloggvænt gerst í lífi mínu í þó nokkurn tíma (og ef að það skeður eitthvað þá er ég búin að gleyma því þegar ég sest fyrir framan tölvuna). Þess vegna ætla ég núna bara að skrifa um það sem mér dettur fyrst í hug og vona að eitthvað skiljanlegt kemur úr því.

Ég ætla að byrja á að segja ykkur það að ein peran er sprungin í stofuljósinu. Eftir að hafa hugsað nægju mína um peruna fór ég skyndilega að hugsa um það þegar Doctorinn sagðist ekki borða perur undir neinum kringumstæðum. Sko! Það tók ekki langann tíma fyrir hann að troða sér í bloggið mitt.

Ég væri alveg til í eina peru núna.... eða góðan banana.

Ég hef nýlega uppgötvað ást mína á bananasplitti og á það til að bresta í söng um það þegar ég er í góðu skapi. Ef að þú, lesandi góður (ef þú ert hér enn), þarft einhvern tíma að múta mér farðu þá út í búð og keyptu handa mér bananasplitt.

Hmmm það er lykt í loftinu sem minnir mig á Rögnu ömmu.... ætli það sé ekki sjálfvirki vellyktandispreyjarinn hennar mömmu en hún amma á alveg eins apparat.

Talandi um ömmu þá var ég að horfa á Grey's Anatomy í gær og sá þar atriði þar sem Grey læknir var að hella ösku móður sinnar í vaskinn á skurðstofunni því að þar átti hún heima. Þegar þátturinn var búinn spurði ég mömmu mína hvað hún myndi gera við ösku Rögnu ömmu ef að hún væri brennd þegar hún deyr. Mamma var ekki lengi að hugsa sig um og sagði að hún myndi setja hana í tóma mjólkurfernu vegna þess að þangað setur amma alltaf sígarettuöskuna. Síðan bætti hún við að Helen amma færi í Nescafe dós af sömu ástæðu.

Ég er virkilega svöng... augnablik á meðan ég stelst í jólasmákökur....

Nammi.

Kannski mér takist að skrifa lengra blogg seinna...

Bæ Bæ

Ruslálfarnir

18. október 2007 klukkan 18:40
Í hverri ruslafötu er einhverntíma bananahýði og í hverju bananahýði verður til oggulítill ruslálfur. Í ruslafötunni vex ruslálfurinn og verður smátt og smátt að bandbrjáluðum unglingsruslálfi. Þá er kominn tími til að fara út með ruslið. Þegar komið er í útiruslatunnuna verður ruslálfurinn balloony ef að ekki er annar ruslálfur honum til skemmtunar og selskaps. Þetta gerist oft og er það þess vegna ósköp venjulegt að þegar unglingsruslálfarnir hittast loks í ruslabílnum verður meiriháttar orgía. Þetta leiðir til þess að fleiri ruslálfar byrja að fæðast í bananahýðum. Á ruslahauginum finnur ruslálfurinn sér heimili með nýja maka sínum og eyðir restinni af ævi sinni í að rækta míníbanana í gömlum seríóspökkum.